Opna samráðsgátt um kísilver í Helguvík

Stakksberg hefur opnað samráðsgátt vegna vinnslu frummatsskýrslu umhverfismats kísilverksmiðju fyrirtækisins …
Stakksberg hefur opnað samráðsgátt vegna vinnslu frummatsskýrslu umhverfismats kísilverksmiðju fyrirtækisins í Helguvík. mbl.is/RAX

Stakksberg ehf. hefur opnað samráðsgátt vegna vinnslu frummatsskýrslu umhverfismats kísilverksmiðju fyrirtækisins í Helguvík. Með samráðsgáttinni vill Stakksberg stuðla að auknu samráði við almenning, umfram það sem lög og reglur gera ráð fyrir.

Fram kemur í tilkynningu frá Stakksberg að þetta er í fyrsta sinn sem framkvæmdaraðili stendur fyrir samráði með þessum hætti á meðan á vinnslu frummatsskýrslu stendur. „Með auknu samráði vonast Stakksberg til þess að fram komi athugasemdir frá almenningi sem stuðli að betri og vandaðri frummatsskýrslu,“ segir í tilkynningu. 

Í apríl síðastliðnum féllst Skipu­lags­stofn­un á til­lögu Stakka­bergs ehf., með athugasemdum, á matsáætl­un fyr­ir mat á um­hverf­isáhrif­um kís­il­vers­ins í Helgu­vík. 

Skipu­lags­stofn­un tel­ur að vinna þurfi sér­stak­lega að kynn­ingu og sam­ráði gagn­vart íbú­um við vinnslu frummats­skýrslu svo hægt sé að reka verk­smiðjuna í sátt við íbúa svæðis­ins. Í frummat­skýrslu þarf að koma fram hvernig þess­um þætti hafi verið sinnt og sér­stök áhersla lögð á sam­ráð um þau atriði sem áhyggj­ur íbúa bein­ast einna helst að.

Rekst­ur kís­il­verk­smiðju United Silicon í Helgu­vík gekk brös­ug­lega frá upp­hafi. Á ofn­um henn­ar var ít­rekað slökkt og tug­ir kvart­ana frá íbú­um yfir meng­un frá henni bár­ust. Rekstri henn­ar var að lok­um hætt og fyr­ir­tækið úr­sk­urðað gjaldþrota í byrj­un síðasta árs. 

Öllum frjálst að senda inn athugasemdir

Samráðsgátt Stakksbergs sækir fyrirmynd sína í samráðsgátt stjórnvalda. Öllum er frjálst að senda inn athugasemd eða ábendingu en til þess þarf að skrá sig inn með innskráningarkerfi island.is, Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Líkt og í samráðsgátt stjórnvalda eru athugasemdir í samráðsgátt Stakksbergs birtar opinberlega og undir nafni.

Þrjú mál hafa nú þegar verið birt í samráðsgátt Stakksbergs: Samfélagsleg áhrif, ásýnd og hljóðvist. Fleiri atriði matsins verða birt eftir því sem vinnu við frummatsskýrslu vindur fram

Samráðsgáttin er aðgengileg á slóðinni samrad.stakksberg.is.

Að samráðstímabili loknu verður gerð grein fyrir úrvinnslu athugasemda með samantekt á síðu hvers máls. Tekið verður tillit til athugasemda við vinnslu frummatsskýrslu eins og við á og auk þess mun samantekt fylgja sem viðauki við skýrsluna. Þegar frummatsskýrslu hefur verið skilað til Skipulagsstofnunar verða mál á samráðsgátt Stakksbergs, ásamt athugasemdum og öðru innsendu efni, tekin úr birtingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert