Kæra framkvæmdaleyfi vegna virkjunar

Mynd úr safni af vötnum á Ófeigsfjarðarheiði í Árneshreppi á …
Mynd úr safni af vötnum á Ófeigsfjarðarheiði í Árneshreppi á Ströndum. mbl.is/Golli

Landvernd, Rjúkandi, Náttúruverndarsamtök Íslands og Ungir umhverfissinnar hafa kært ákvörðun sveitarstjórnar Árneshrepps um að gefa út framkvæmdaleyfi vegna fyrsta áfanga Hvalárvirkjunar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.

Landeigendur meirihluta Drangavíkur í Árneshreppi á Ströndum kærðu í síðasta mánuði framkvæmdaleyfi fyrsta áfanga auk deiliskipulags.

Samþykkt var á fundi sveitarstjórnar Árneshrepps 12. júní að veita leyfi fyrir fyrsta hluta framkvæmda við Hvalárvirkjun.

Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar.
Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar.

Fram kemur í tilkynningunni að náttúruverndarlög séu brotin þar sem taka á efni úr stöðuvatni sem nýtur verndar og skerða á víðerni sem njóta verndar. Samtökin telja óheimilt að skipta skipulagi og framkvæmdum í hluta. Taka eigi ákvörðun um virkjun í einu lagi.

Þá hafi framkvæmdin sem leyfið er veitt fyrir ekki farið í gegnum rammaáætlunarferli, samþykkt af Alþingi. Samtökin telja lög um umhverfismat og útgáfu framkvæmdaleyfis brotin þar sem ekki sé tekið tillit til álits skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum sem var virkjuninni mjög óhagfellt og hluti af fyrirhugaðri efnistöku hafi ekki verið umhverfismetinn.

Þá hafa samtökin bent sveita[r]stjórn Árneshrepps og Vesturverki á það áður í formlegu umsagnarferli að það umfangsmikla rask sem fara á í á óbyggðum víðernum má auðveldlega forðast ef markmiðið er að stunda rannsóknir.  Ekki hefur verið brugðist við þeim ábendingum nema með fullyrðingum um kostnað sem ekki eru studdar með gögnum,“ kemur fram í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert