Sterkustu tengslin eru við ís

Ekki er hægt að fullyrða að börnin sem smituðust af …
Ekki er hægt að fullyrða að börnin sem smituðust af E.coli á ferðaþjónustubænum Efstadal 2 hafi sýkst af umgengni við kálfa. mbl.is/Hari

„Ekki er hægt að fullyrða að börnin [sem smituðust af E.coli á ferðaþjónustubænum Efstadal 2] hafi sýkst af umgengni við kálfa. Mögulegar smitleiðir á bænum eru margar en sterkustu faraldsfræðilegu tengslin eru við ís sem framleiddur var á staðnum.“ Þetta kemur fram í áréttingu vegna fréttaflutnings af smiti og smitleiðum E. coli sýkinga í Efstadal 2. 

Þetta er sameiginleg yfirlýsing frá Sóttvarnalækni, Matvælastofnun, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Matís og Sýkla- og veirufræðideild Landspítala.

Hún er birt í heild sinni hér fyrir neðan:

Í fréttum og viðtölum við staðarhaldara á ferðaþjónustubænum Efstadal 2 í gær 9.7.2019 um smit og smitleiðir E. coli (STEC) á bænum mátti skilja, að rannsóknarniðurstöður hafi sýnt að börnin sem sýktust á bænum hafi smitast vegna umgangs við kálfa en ekki af neyslu matvæla á bænum.

Vegna þessa viljum við árétta eftirfarandi: 

  • Bakteríurannsóknir sýndu að kálfar á staðnum báru sömu bakteríur og sýktu börnin.
  • Helmingur barnanna hafði ekki verið í tengslum við kálfa á staðnum.
  • Það eina sem öll börnin níu áttu sameiginlegt var neysla íss í Efstadal 2 en tíunda barnið smitaðist af systkini.
  • Þær bakteríur sem sýktu börnin greindust með fundust ekki í ís á staðnum. Ísinn sem rannsakaður var, var hins vegar ekki sá sami og börnin höfðu borðað því ný framleiðsla var komin í sölu.
  • Fleiri bakteríurannsóknir standa nú yfir m.a. á starfsfólki staðarins. 

Af ofangreindu má því sjá að ekki er hægt að fullyrða að börnin hafi sýkst af umgengni við kálfa. Mögulegar smitleiðir á bænum eru margar en sterkustu faraldsfræðilegu tengslin eru við ís sem framleiddur var á staðnum.

Aðgerðir og ráðstafanir sem gripið var til beinast einmitt að því að rjúfa þessar smitleiðir með því að stöðva framleiðslu á ís og samgangi við kálfa á staðnum, og skerpa á vinnureglum og hreinlæti. Nánari upplýsingar um aðgerðir og ráðstafanir í Efstadal 2 má fá hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Matvælastofnun.

Sóttvarnalæknir hefur einnig sett sig í samband við Safetravel.is og Samtök ferðaþjónustunnar um að koma nauðsynlegum upplýsingum til ferðamanna sem heimsótt hafa Efstadal 2 og kunna að hafa smitast. Einnig hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) verið upplýst eins og alþjóðalög kveða á um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert