Mislingasmit greinist í Reykjavík

Um 95% einstaklinga á aldrinum tveggja til 18 ára hafa …
Um 95% einstaklinga á aldrinum tveggja til 18 ára hafa verið bólusettir gegn mislingum og rúmlega 50% einstaklinga á aldrinum eins til tveggja ára. mbl.is/Hari

Fullorðinn einstaklingur, sem búsettur er á höfuðborgarsvæðinu, greindist með mislinga fyrir nokkrum dögum, en hann hafði verið á ferðalagi í Úkraínu í júnímánuði og hefur ekki skjalfesta bólusetningu gegn mislingum.

Þetta kemur fram á vef landlæknis og er sjúklingnum sagt heilsast vel eftir atvikum og ekki sé vitað um fleiri smit á þessari stundu. Mislingafaraldur hefur verið í gangi í Úkraínu undanfarin ár og greindust rúmlega 25.000 einstaklingar með mislinga þar fyrstu tvo mánuði þessa árs.

Segir landlæknisembættið að í tengslum við þetta tilfelli hafi verið unnið samkvæmt áætlunum sem notaðar voru í mislingafaraldrinum hér á landi í febrúar- og marsmánuði. Þannig hefur verið haft samband við þá einstaklinga sem kunna að hafa smitast og viðhafðar viðeigandi ráðstafanir eftir atvikum sem geta falist í sóttkví, bólusetningu eða blóðprófum. Þá hefur heilbrigðisþjónustan verið upplýst og aðilar beðnir um að vera á varðbergi gagnvart hugsanlegum mislingatilfellum.

Landlæknisembættið segir ekki búist við því að faraldur sé í uppsiglingu, þó stöku mislingatilfelli geti sést til viðbótar.

Um 95% einstaklinga á aldrinum tveggja til 18 ára hafa verið bólusettir gegn mislingum og rúmlega 50% einstaklinga á aldrinum eins til tveggja ára.

Sóttvarnalæknir hvetur alla sem hyggja á ferðalag til landa þar sem mislingar geisa að huga vel að bólusetningum áður en ferð er hafin. Upplýsingar um útbreiðslu mislinga má finna á vef Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO)  og upplýsingar um mislinga á vef embættis landlæknis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert