Töluverðar líkur eru á þrumur og eldingum á Suður- og Vesturlandi á morgun eftir hádegi, að því er fram kemur á Facebook-síðu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Þar er fólki bent á að fara strax upp úr sundlaugum og heitum pottum ef það verður vart við þrumuveður.
Á vef almannavarna er að finna upplýsingar um forvarnir og viðbrögð vegna eldinga.
Þar segir að forðast eigi vatn, hæðir í landslagi og berangur, málmhluti, lítil skýli og stór tré. „Leitið skjóls, ef unnt er, í stærri byggingum eða yfirbyggðu ökutæki úr málmi. Hafið glugga lokaða.“
Leiki grunur á að eldingu slái niður nálægt fólki og það nái ekki að komast í skjól er því ráðlagt að krjúpa niður á kné, beygja sig fram og styðja höndum á hnén, en leggjast ekki flatt.