Sjólaskipasystkini ákærð vegna skattamála

Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari staðfestir í samtali við mbl.is að …
Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari staðfestir í samtali við mbl.is að um sé að ræða meint brot systkinanna gegn ákvæðum skattalaga. mbl.is/Ófeigur

Embætti héraðssaksóknara hefur gefið út fimm ákærur á hendur systkinum sem oftast eru kennd við útgerðarfélagið Sjólaskip. Systkinin, tveir bræður og tvær systur, eru ákærð hvert um sig og einnig eru bræðurnir tveir ákærðir sameiginlega í einu málanna. Fyrst var greint frá þessu á vef RÚV.

Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari staðfestir í samtali við mbl.is að um sé að ræða meint brot systkinanna gegn ákvæðum skattalaga. 

Að öðru leyti vill hann ekki tjá sig efni ákæranna, þar sem þær hafa ekki verið birtar systkinunum, en málin verða þingfest í lok ágúst.

Í nóvember árið 2016 greindi Fréttatíminn frá því að skattrannsóknarstjóri hefði sent viðskipti systkinanna í skattaskjólinu Tortóla til rannsóknar héraðssaksóknara, en á meðal þess sem kom fram í frétt blaðsins var það að af­l­ands­fé­lög á Tortóla hefðu greitt kred­it­korta­reikn­inga fyr­ir ein­stak­linga í útgerðarfjölskyldunni.

Það sagði Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri að væri alþekkt aðferð við að taka peninga út úr aflandsfélögum.

Áður hafði verið fjallað um það í fréttum Fréttatímans og Reykjavík Media að nöfn systkinanna fjögurra væri að finna í Panamaskjölunum, gögnum sem komu frá panamísku lögfræðistofunni Mossack Fonseca.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert