Niðurrif á Gelgjutanga

Húsin í Kjalarvogi sem verða rifin eru fyrir miðri mynd. …
Húsin í Kjalarvogi sem verða rifin eru fyrir miðri mynd. Norðan við húsin er athafnasvæði Samskipa en Snarfarahöfnin er sunnan megin. mbl.is/​Hari

Reykjavíkurborg hefur samþykkt niðurrif á átta húsum og einni botnplötu á lóðinni númer 10 við Kjalarvog. Samanlagt flatarmál þessara bygginga er 5.727 fermetrar. Byggingarnar, sem standa á Gelgjutanga, þurfa að víkja fyrir íbúðarbyggð, svokallaðri Vogabyggð 1. Gelgjutangi er smánes sem skagar út í Elliðaárvog á móts við Grafarvog.

Á Gelgjutanga hófst uppbygging skipasmíðaiðnaðar á árum seinni heimsstyrjaldar og þar var byggð lítil dráttarbraut. Meðal fyrirtækja á nesinu voru Keilir, Landssmiðjan og Bátanaust. Olíufélagið hf.(Essó), nú N1, var með einnig starfsemi á Gelgjutanga. Takmörkuð starfsemi hefur verið í húsunum síðustu árin. Samkvæmt húsaskrá eru byggingarnar sem rífa á reistar á árunum 1948-1981. Yngsta byggingin og jafnframt sú stærsta er lagerbygging frá 1981, 2.669 fermetrar. Sú næststærsta og jafnframt elsta er geymsla, byggð árið 1948.

Það er fyrirtækið U14-20 ehf., Borgartúni 25, sem sækir um leyfi til niðurrifsins. Í hlutafélagaskrá kemur fram að þetta er einkahlutafélag, stofnað árið 2017. Starfsemi þess er bygging íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Stofnandi er Steinsteypan ehf., Koparhellu 1 í Hafnarfirði. Skráður stjórnarformaður er Jóhann Ásgeir Baldurs og meðstjórnandi Daníel Þór Magnússon. Hann er jafnframt framkvæmdastjóri og prókúruhafi, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert