Þyrlan sækir mann sem féll í Úlfljótsvatn

Björgunarsveitir í Árnessýslu og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út um hálfsexleytið í dag vegna erlends veiðimanns sem misst hafði fótfestu og fallið í Úlfljótsvatn skammt frá Steingrímsstöð. Greint er frá þessu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Búið er að ná manninum í land og hefur hann nú verið fluttur til Reykjavíkur á Landspítalann.

Ekki er vitað um líðan mannsins að svo komnu máli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert