Tveir kálfar meðal þeirra sem drápust

Þeir Sverrir Daníel Halldórsson og Þorvaldur Gunnlaugsson, sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun, …
Þeir Sverrir Daníel Halldórsson og Þorvaldur Gunnlaugsson, sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun, tóku sýni úr hvölunum. mbl.is/Alfons

Sérfræðingar Hafrannsóknarstofnunar hafa nú lokið athugunum sínum og sýnatöku á grindhvölunum sem drápust í fjörunni nærri Garðskagavita í gærkvöldi og nótt. Á milli 50 og 60 hvalir gengu þar á land í gærkvöldi og var stór hóp­ur fólks að störf­um í nótt við að halda grind­hvöl­un­um á lífi. Björg­un­ar­sveit­ir og lög­reglu­yf­ir­völd komu að aðgerðunum á tí­unda tím­an­um í gær­kvöldi en þá voru sjálf­boðaliðar þegar mætt­ir á svæðið.

Þeir Sverrir Daníel Halldórsson og Þorvaldur Gunnlaugsson, sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun, komu svo á vettvang í dag eftir að búið var að búið var að bjarga um 30 hvölum og koma á haf út. 

Í skriflegum svörum Sverris við fyrirspurn mbl.is kemur fram að 14 dýr hafi verið í fjörunni er þeir komu á vettvang, þar af tveir kálfar. Samanstóð hópurinn af 11 kúm og þremur törfum og reyndist stærsti tarfurinn vera 459cm langur og stærsta kýrin 439 cm.

Tóku þeir Þorvaldur erfðasýni úr dýrunum og gerðu mælingar til að meta holdafar þeirra og þá voru einnig tekin blóðsýni til bakteríu- og veiruskimunar.

Edda Elísa­bet Magnús­dótt­ir sjáv­ar­líf­fræðing­ur sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að björg­un­ar­sveit­ar­menn hafi unnið af­rek við að koma hinum hvölunum til sjávar á ný.

Hún telur lík­legt að ein­hverj­ir hvalanna muni stranda aft­ur og deyja, en ef þeir nái full­um bata geti þeir lifað í 40–60 ár. Grind­hval­irn­ir geta lifað í um það bil sól­ar­hring á þurru landi.

Tveir kálfar voru í hópi þeirra grindhvala sem drápust.
Tveir kálfar voru í hópi þeirra grindhvala sem drápust. mbl.is/Alfons
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert