Lilja heiðursgestur í Manitoba

„Það er stórkostlegt að fá að upplifa Íslendingahátíðina hér í …
„Það er stórkostlegt að fá að upplifa Íslendingahátíðina hér í Vesturheimi,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningamálaráðherra í ávarpi sínu. Ljósmynd/Aðsend

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra var heiðursgestur á hátíðarhöldum sem efnt var til í Gimli í Manitobafylki í Kanada í dag í tilefni að Íslendingadeginum, sem haldinn var þar haldinn hátíðlegur í 130. skipti.

Um er að ræða helstu hátíðarhöld á vegum fólks af íslenskum uppruna í Kanada og var efnt til mikillar dagskrá er í tilefni dagsins. Hápunkturinn var þó fjölmenn skrúðganga þar sem fulltrúar fjölmargra hópa tóku þátt.

Lilja greindi í ávarpi sínu frá samkomulagi mennta- og menningarmálaráðuneytis, forsætisráðuneytis og Háskóla Íslands um aukinn stuðning við íslenskudeildina við Manitobaháskóla í Winnipeg. Stuðningurinn felur í sér ráðningu kennara til þriggja ára við deildina sem mun meðal annars kenna námskeið í íslenskum bókmenntum, sinna framhaldsnemum deildarinnar, hafa umsjón með sumarnámskeiði á Íslandi fyrir nemendur deildarinnar og koma að útgáfustarfsemi í tengslum við bókmennta- og menningararf Vesturfaranna og afkomenda þeirra í Norður-Ameríku.

„Það er stórkostlegt að fá að upplifa Íslendingahátíðina hér í Vesturheimi. Tenging afkomenda Vesturfaranna við Ísland er mjög sterk og það hreyfir við manni að sjá hvernig þeir halda uppruna sínum á lofti. Það er skylda okkar Íslendinga að rækta þessi tengsl af alúð og alvöru,“ er haft eftir Lilju í frétt á vef Stjórnarráðsins.

Í Gimli búa að staðaldri um 3.000 manns, en á Íslendingadeginum má búast við á milli 30-40.000 manns í bænum.

Í tengslum við Íslendingadaginn heimsótti ráðherra einnig fjölda staða á Íslendingaslóðunum í Manitoba. Má þar nefna Hvítastein (e. White Rock), menningarsafnið Nýja Ísland í Gimli, Víkingagarðinn og dvalarheimilið Betel en þar búa aldraðir afkomendur íslenskra Vesturfara sem sumir hverjir tala íslensku.

Samkvæmt Hagstofu Kanada gefa um 90 þúsund Kanadamenn uppruna sinn sem íslenskan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert