Menntamálaráðherra heilluð af vesturförum

Lilja Alfreðsdóttir heimsækir Lilju Arnason, 95 ára Vestur-Íslending og fyrrverandi …
Lilja Alfreðsdóttir heimsækir Lilju Arnason, 95 ára Vestur-Íslending og fyrrverandi fjallkonu á hátíðinni. Ljósmynd/Leif Norman

Íslendingadagurinn svokallaði var haldinn í 130. skipti í bænum Gimli í Manitoba-fylki í Kanada í gær en Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, var heiðursgestur hátíðarinnar.

Var hún jafnframt fulltrúi íslenskra stjórnvalda á sambærilegum Íslendingadegi í bænum Mountain í Norður-Dakóta en þaðan ferðaðist Lilja til Kanada í fyrradag.

Íslendingadagurinn er haldinn af afkomendum vesturfara eða Vestur-Íslendingum, sem fluttu frá Íslandi til Kanada og Bandaríkjanna á nítjándu öld. Lilja flutti í tilefni dagsins ávarp og tók þátt í skrúðgöngu hátíðarinnar.

Í ávarpi sínu færði Lilja Vestur-Íslendingum kveðjur frá íslensku þjóðinni. Lilja kveðst vera heilluð af menningu bæjarins.

Sjá viðtal við Lilju í heild á baksíðui Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert