Eldur í mosa á Reykjanesi

Eldurinn kom upp í mosa í námunda við Djúpavatn vestan …
Eldurinn kom upp í mosa í námunda við Djúpavatn vestan Kleifarvatns. mbl.is/RAX

Eldur logar í mosa við Djúpavatn í nágrenni Grindavíkur. Slökkvilið Grindavíkur óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar og var þyrlan TF-LÍF send á vettvang með búnað til að slökkva eldinn, samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni.

Þá er allt tiltækt lið slökkviliðs Grindavíkur á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert