Mest brotið á erlendu launafólki

Framkvæmdir í miðborg Reykjavíkur.
Framkvæmdir í miðborg Reykjavíkur. mbl.is/​Hari

Launakröfur vegna launaþjófnaðar og kjarasamningsbrota hlaupa á hundruðum milljóna króna á ári. Meira en helmingur allra krafna stéttarfélaga er gerður fyrir hönd félagsmanna af erlendum uppruna.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ASÍ um brotastarfsemi á vinnumarkaði. Hún sýnir hvaða hópar eru líklegastir til að verða fyrir brotum, hvaða atvinnugreinar koma verst út og umfang launaþjófnaðar í krónum talið svo fátt eitt sé talið.

Fram kemur í skýrslunni að fjögur aðildarfélög ASÍ gerðu 768 launakröfur árið 2018 upp á samtals 450 milljónir króna og nam miðgildi kröfuupphæðar 262.534 kr.

Meira en helmingur allra krafna stéttarfélaga er gerður fyrir hönd félagsmanna af erlendum uppruna. Um 19% launafólks á íslenskum vinnumarkaði er af erlendum uppruna.

Um helmingur allra krafna kemur úr hótel-, veitinga- og ferðaþjónustu en hæstu launakröfurnar eru gerðar á fyrirtæki í mannvirkjagerð.

Frá baráttudegi verkalýðsins, 1. maí síðastliðinn.
Frá baráttudegi verkalýðsins, 1. maí síðastliðinn. mbl.is/​Hari

Svipaðar niðurstöður spurningakönnunar

Niðurstöður spurningakönnunar Gallup eru í takt við launakröfur stéttarfélaga og benda til þess að brotastarfsemi beinist fremur gegn erlendu launafólki og yngra fólki, með lægri tekjur og í óreglulegu ráðningarsambandi og hlutastörfum.

Skoðun á launakröfum og spurningakönnunin benda til að brotin felist m.a. í vangreiðslum á launum, álagsgreiðslum og ýmsum réttindabrotum. Hjá meirihluta launafólks, einkum hjá þeim sem hafa lengri starfsaldur og hærri tekjur, er brotastarfsemi nærri óþekkt.

„Brotastarfsemi gagnvart erlendu launafólki og ungmennum er alvarleg meinsemd á íslenskum vinnumarkaði sem uppræta verður með öllum tiltækum ráðum. Dæmin skipta ekki bara tugum eða hundruðum. Brotin snerta þúsundir einstaklinga. Þessir félagar okkar eiga að njóta kjara og annarra réttinda til jafns við aðra á vinnumarkaði. Það eru hagsmunir samfélagsins alls. Hér er ábyrgð stjórnvalda og samtaka atvinnurekenda mikil,“ segir í tilkynningu frá ASÍ.

Fram kemur að í tengslum við gerð kjarasamninga í vor gaf ríkisstjórn Íslands fyrirheit um að gripið verði til fjölmargra aðgerða gegn launaþjófnaði og brotastarfsemi á vinnumarkaði. Fyrirheitin byggja á kröfum og áherslum verkalýðshreyfingarinnar.

„Fyrir liggur aðgerðaáætlun en verkefnið nú er að fylgja yfirlýsingunni eftir og hrinda að fullu í framkvæmd á næstu mánuðum þannig að stigin verði markviss og afgerandi skref til að uppræta brotastarfsemi á vinnumarkaði.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert