Virðið lokanir, leggið löglega og munið eftir góða skapinu

Kort sem sýnir gönguleiðina og lokanir.
Kort sem sýnir gönguleiðina og lokanir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður fólk að gæta þess að virða lokanir, leggja löglega og muna eftir góða skapinu þegar Gleðigangan fer fram á morgun, en gangan er árviss og hápunktur Hinsegin daga.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni, að þess beri að geta að gönguleiðin sé breytt frá því í fyrra.

„Að þessu sinni leggur gleðigangan af stað frá Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti, stundvíslega kl. 14:00. Gengið verður eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og endað á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn þar sem taka við glæsilegir útitónleikar að göngu lokinni. Uppstilling byrjar kl.12 en gangan hefst kl. 14. Gönguleiðin og götulokanir vegna hennar má sjá á meðfylgjandi korti. Götulokanir verða á milli kl. 10.00 – 18.00.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert