Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók á móti forsætisráðherra Finnlands, Antti Rinne, í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu síðdegis í dag. Þar ræddu þau um stöðu og þróun stjórn- og efnahagsmála á Íslandi og í Finnlandi, og aðgerðir í loftslagsmálum.
Fundurinn var haldinn í tengslum við sumarfund forsætisráðherra Norðurlandanna sem hefst formlega á morgun, en Katrín og Rinne ræddu sérstaklega um formennskuáætlun Íslands í Norðurskautsráðinu og málefni norðurslóða og þróun mála í Evrópusambandinu þar sem Finnar fara með formennsku í leiðtogaráði ESB seinni hluta þessa árs.
Á sumarfundi forsætisráðherra Norðurlandanna verður meðal annars fjallað um samnorrænar aðgerðir Norðurlandanna á sviði loftslagsmála og umhverfismála almennt, nýja framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar til næstu 10 ára, málefni norðurslóða, stöðu mannréttindamála, þ.m.t. jafnréttismála, stöðu alþjóðamála og öryggismál.