Merkel fylgdi Katrínu í Almannagjá

Angela Merkel og Katrín Jakobsdóttir.
Angela Merkel og Katrín Jakobsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vel fór á með Angelu Merkel og Katrínu Jakobsdóttur þar sem forsætisráðherra tók á móti kanslaranum við Hakið á Þingvöllum nú í kvöld.

Leiðtoginn íslenski lýsti staðháttum fyrir þeim þýska þar sem þær gengu niður Almannagjá og áleiðis í ráðherrabústaðinn þar sem fram fer blaðamannafundur innan skamms.

Angela Merkel og Katrín Jakobsdóttir.
Angela Merkel og Katrín Jakobsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Merkel, kanslari Þýskalands, er sérstakur gestur á árlegum sumarfundi ráðherra Norðurlandanna sem hefst formlega á morgun.  Sérstaklega verður horft til tækifæra til þess að auka samstarf Norðurlandanna og Þýskalands til að takast á við áskoranir á alþjóðavettvangi, ekki hvað síst afleiðingar loftslagsbreytinga og stuðning við sjálfbæra þróun.

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert