Þrjár milljónir vegna leiðsöguhunds

Sigþór Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins, tók við styrknum á hátíðarsamkomu félagsins …
Sigþór Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins, tók við styrknum á hátíðarsamkomu félagsins í dag. Ljósmynd/Aðsend

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fagnar áttatíu ára afmæli í dag.

Í tilefni dagsins veitti Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, félaginu þriggja milljóna króna styrk til kaupa og þjálfunar á leiðsöguhundi. Var styrkurinn formlega afhentur á hátíðarsamkomu félagsins á Hilton Reykjavík Nordica.

Blindrafélagið vinnur að hagsmuna- og félagsmálum blindra og sjónskertra, rekur Blindravinnustofuna og veitir margvíslega þjónustu, fræðslu og jafningjastuðning.

Á liðnum árum hefur félagið unnið markvisst að því að fjölga leiðsöguhundum til að mæta þörfum félagsmanna sinna.

„Fyrir liggur greinargóð skýrsla Blindrafélagsins og Þjónustu og þekkingarmiðstöðvarinnar blindra og sjónskertra og einstaklinga með samþætta sjón og heyrnarskerðingu um hvernig staðið hefur verið að þjálfun, fjármögnun og úthlutun á leiðsöguhundum. Þar er jafnframt að finna tillögur til framtíðar,” sagði Ásmundur Einar þegar hann ávarpaði gesti, að því er segir í tilkynningu.

Hann sagði áratugahefð fyrir því að blindir og sjónskertir um nánast allan heim nýti hunda í daglegu lífi til þess að komast á milli staða. „Leiðsöguhundar eru þannig afar mikilvægir til að tryggja aukið sjálfstæði blindra og aðlögun þeirra að samfélaginu.“

Ásmundur Einar sagðist vilja leggja leiðsöguhundaverkefninu svokallaða lið með sérstöku styrktarframlagi og flýta þannig fyrir framvindu þess. Hann upplýsti einnig að hann hyggst stofna sérstakan samráðshóp sem fær það hlutverk að vinna að framþróun verkefnisins með tilliti til þeirra tillagna sem komu fram í fyrrnefndri skýrslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert