Lán til nýbygginga á landsbyggðinni

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, undirritaði í morgun breytingar …
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, undirritaði í morgun breytingar á reglugerð. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Reglugerð verður breytt sem gerir það að verkum að sveitarfélög, einstaklingar og óhagnaðardrifin félög á landsbyggðinni muni fljótlega geta tekið lán hjá Íbúðalánasjóði til húsnæðisuppbyggingar á stöðum þar sem önnur fjármögnun er ekki í boði. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, undirritaði breytingar þess efnis í morgun á Drangsnesi í Steingrímsfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Það liggur fyrir að á mörgum stöðum hefur ekkert eða mjög lítið verið byggt um árabil, þrátt fyrir að eftirspurnin sé mikil og greiðslugeta hjá íbúum svæðisins góð. Sveitarfélögin hafa sérstaklega bent á skort á viðeigandi leiguhúsnæði. Með reglugerðarbreytingunni, sem ég undirritaði í morgun, verður hægt að fá lán til byggingar nýs húsnæðis á svæðum sem glíma við þetta sérstaka misvægi í byggingarkostnaði og markaðsverði,“ er haft eftir Ásmundi Einari í tilkynningu. 

„Í reglugerðinni kemur fram að markmið lánveitinganna sé að tryggja eðlilega fjölgun íbúða á þessum svæðum, aukið húsnæðisöryggi óháð búsetu auk þess að stuðla að heilbrigðum húsnæðismarkaði og viðskiptum með íbúðarhúsnæði“ segir ennfremur í tilkynningu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert