Í beinni: Áhugi Trumps á Grænlandi

„Áhugi Trumps á Grænlandi: Toppurinn á ísjakanum“ er yfirskrift fyrirlesturs …
„Áhugi Trumps á Grænlandi: Toppurinn á ísjakanum“ er yfirskrift fyrirlesturs sem fram fer í Norræna húsinu í hádeginu þar sem áhugi Bandaríkjanna á Grænlandi verður til umræðu ásamt hvaða þýðingu þessi aukni áhugi Bandaríkjaforseta á Grænlandi hefur fyrir Ísland. AFP

Hvað þýðir aukinn áhugi Bandaríkjanna á Grænlandi fyrir Ísland, samband Grænlands við Danmörku og öryggishagsmuni ríkja á norðurslóðum? Þeirri spurningu, ásamt fleirum, verður reynt að svara á opnum fyrirlestri í Norræna húsinu í hádeginu. 

Grænland hefur í langan tíma þjónað mikilvægu hlutverki fyrir öryggi Bandaríkjanna, ekki síst í vaxandi samkeppni Kína og Bandaríkjanna á svæðinu. Þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir fyrir skömmu að hann hefði áhuga á að kaupa Grænland hefur Grænland eðlilega ratað meira í sviðsljósið. 

Yfirskrift fyrirlestrarins er Áhugi Trumps á Grænlandi: Toppurinn á ísjakanum og er framsögumaður Damien Degeorges. Hann rekur eigið ráðgjafafyrirtæki í Reykjavík, talar reiprennandi dönsku og hefur í yfir 15 ár fylgst náið með þróun mála á Grænlandi. Hann hefur doktorsgráðu í stjórnmálafræði og fjallaði doktorsritgerðin hans um hlutverk Grænlands á norðurslóðum.

Fyrirlesturinn er í boði Rannsóknarseturs um norðurslóðir við Háskóla Íslands og Norðurlanda í fókus. Streymt verður frá viðburðinum sem fer fram á ensku og er opinn öllum.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert