Óveruleg eða neikvæð áhrif

Skjálfandafljót sker dalinn eftir endilöngu. Myndin er tekin fremst í …
Skjálfandafljót sker dalinn eftir endilöngu. Myndin er tekin fremst í dalnum til norðurs þar sem fljótið hlykkjast á milli skógar og hrauns mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Lögð hefur verið fram frummatsskýrsla um mat á umhverfisáhrifum Einbúavirkjunar í Skjálfandafljóti. Áhrif á umhverfið eru misjöfn, eftir því hvaða þættir eru skoðaðir en í heildina eru þau metin á bilinu óveruleg til nokkuð neikvæð.

Samfélagsleg áhrif eru hins vegar metin nokkuð til talsvert jákvæð. Fyrirtækið sem hyggst virkja telur að Einbúavirkjun falli ekki undir rammaáætlun en verkefnisstjórn hennar gerir ráð fyrir friðun Skjálfandafljóts.

Félagið Einbúavirkjun ehf. stendur fyrir áformum um tæplega 10 MW virkjun í Skjálfandafljóti. Ætlunin er að byggja hreina rennslisvirkjun í fljótinu í landi Kálfaborgarár og Einbúa í Bárðardal. Nýtt verður 24 metra fall á um það bil 2,6 km kafla fljótsins. Vatni verður veitt úr fljótinu um 1,3 km langan skurð að stöðvarhúsi og þaðan verður frárennsli veitt um 1,3 km langan veg út í Skjálfandafljót á ný.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert