Loftslagsbreytingar brýnasta pólitíska viðfangsefnið

Loftlagsmál verða meginstef í drögum að stefnu VG sem reifuð …
Loftlagsmál verða meginstef í drögum að stefnu VG sem reifuð verða á flokkráðsfundinum um helgina. Ljósmynd/Steinþór Rafn Matthíasson

Loftslagsmál verða í aðalhlutverki á flokkráðsfundi Vinstri-grænna sem hefst nú á sjötta tímanum og mun standa yfir í Skaftafelli um helgina í aðdraganda ellefta landsfundar hreyfingarinnar um miðjan október.

Málefnavinnu og yfirlit Katrínar Jakobsdóttur, formanns VG og forsætisráðherra, mun bera hæst á fundinum og marka upphafið að seinni hluta kjörtímabilsins í ríkisstjórn Katrínar.

Á fundinum verða drög að nýrri matvælastefnu, umhverfisstefnu, orkustefnu, heilbrigðisstefnu og jafnréttisstefnu reifuð svo eitthvað sé nefnt. Þá verður gerð grein fyrir vinnu stjórnarskrárhóps VG sem hefur starfað á þessu kjörtímabili.

Katrín Jakobsdóttir var glöð í bragði er hún mætti til …
Katrín Jakobsdóttir var glöð í bragði er hún mætti til fundarins. Ljósmynd/Steinþór Rafn Matthíasson

Stjórnmálahreyfingum ber að taka mið af loftslagsbreytingum

Loftslagsmálin verða meginstefið í stefnumótun Vinstri-grænna í öllum málaflokkum.

„Loftslagsbreytingar eru brýnasta pólitíska viðfangsefni samtímans. Stjórnmálahreyfingum ber því að taka mið af þessu í allri sinni stefnumótun og flétta inn í hana leiðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, auka kolefnisbindingu og gera um leið áætlanir til að bregðast við þeim breytingum sem fyrirsjáanlegar eru,“ er haft eftir forsætisráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, í tilkynningu.

Katrín mun halda ræðu klukkan 17:15 og verður beint streymi frá henni á vefsíðu VG.

Edward H. Huijbens, varaformaður VG, mun ekki gefa kost á …
Edward H. Huijbens, varaformaður VG, mun ekki gefa kost á sér þegar kosið verður í nýja stjórn VG í október. Ljósmynd/Steinþór Rafn Matthíasson

VG komst á þrítugsaldurinn á árinu og verður því fagnað um helgina. Þingmenn hreyfingarinnar munu sitja í pallborði á laugardeginum og greina málefnin og stöðuna í stjórnmálum með fulltrúum flokksráðs.

Ný stjórn VG verður kosin á landsfundi í október og gefið hefur verið út að Edward H. Huijbens varaformaður muni ekki gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.

Ljósmynd/Steinþór Rafn Matthíasson
Ljósmynd/Steinþór Rafn Matthíasson
Ljósmynd/Steinþór Rafn Matthíasson
Ljósmynd/Steinþór Rafn Matthíasson
Ljósmynd/Steinþór Rafn Matthíasson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert