Taka á móti 25 flóttamönnum frá Keníu

Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna 78, Ásmundur Einar Daðason, félags- …
Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna 78, Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Magnús Örn Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar Seltjarnarness. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag samninga við Garðabæ og Seltjarnarnes um móttöku flóttafólks frá Keníu. Um er að ræða 25 einstaklinga sem hafa dvalið í Keníu en eru frá Úganda, Rúanda, Kongó, Súdan og Simbabve. Hópurinn kemur til landsins 12. september.

Er þetta í fyrsta sinn sem Garðabær og Seltjarnarnes taka á móti kvótaflóttafólki. Fyrirhugað er að Mosfellsbær taki einnig á móti hluta hópsins og er sveitarfélagið að gera það í annað sinn, að því er fram kemur í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu.

Fram kemur að um sé að ræða einstaklinga sem hafi þurft að flýja heimalönd sín vegna kynhneigðar og þetta sé í þriðja sinn sem íslensk stjórnvöld taki á móti hinsegin flóttafólki, en móttakan er í samvinnu við sveitarfélög og Rauða krossinn á Íslandi.

„Mikil ánægja hefur verið á meðal móttökusveitarfélaga með góðan árangur af móttöku þess. Samkvæmt samningunum er greidd framfærsla og sérstakur stuðningur vegna skólagöngu, íslenskukennslu, samfélagsfræðslu og túlkaþjónustu svo dæmi séu nefnd.

Hinsegin flóttafólki hefur fjölgað í heiminum en í dag  er samkynhneigð bönnuð samkvæmt lögum í yfir sjötíu löndum. Dauðarefsing vegna samkynhneigðar er hámarksrefsing í ellefu þeirra. Í ljósi sérstöðu hópsins var einnig undirritaður samningur við Samtökin 78 um ráðgjöf og fræðslu til flóttafólksins, sveitarfélaganna sem um ræðir og Rauða krossins á Íslandi og sjálfboðaliða þeirra,“ segir í tilkynningunni. 

Þá kemur fram að 12. október í fyrra hafi ríkisstjórnin samþykkt að tekið yrði á móti allt að 75 flóttamönnum árið 2019. Fyrri hópurinn kom til landsins í apríl en þá var tekið á móti 50 einstaklingum frá Sýrlandi og eru þeir nú búsettir á Hvammstanga, á Blönduósi og í Árborg. Ekki hefur verið tekið á móti fleira flóttafólki síðan 1999 þegar tekið var á móti 75 einstaklingum frá Kosovo.     

„Það er fagnaðarefni að sveitarfélög séu jákvæð þegar kemur að því að taka á móti fólki á flótta. Frumkvæði sveitarfélaga og gott samstarf allra hlutaðeigandi aðila er ástæða þess að vel hefur tekist til við móttöku flóttafólks á undanförnum árum,“ er haft eftir Ásmundi Einari í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert