Grímur nýr framkvæmdastjóri Geðhjálpar

Grímur Atlason, nýr framkvæmdastjóri Geðhjálpar.
Grímur Atlason, nýr framkvæmdastjóri Geðhjálpar.

Stjórn Geðhjálpar hefur ráðið Grím Atlason í starf framkvæmdastjóra samtakanna, en Grímur hefur meðal annars starfað sem bæjarstjóri Bolungarvíkur, sveitarstjóri Dalabyggðar og framkvæmdastjóri Iceland Airwaves-tónlistarhátíðarinnar í átta ár. Þá hefur Grímur starfað á vettvangi heilbrigðis- og félagsþjónustu á Íslandi og í Danmörku. Síðastliðið ár hefur hann starfað sem verkefnisstjóri á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar.

Grímur er menntaður þroskaþjálfi og mun ljúka MBA-gráðu frá Háskóla Íslands næsta vor. Grímur tekur við starfinu af Önnu Gunnhildi Ólafsdóttur sem hefur verið framkvæmdastjóri síðustu sex ár.

Í tilkynningu frá Geðhjálp er haft eftir Grími að málefni einstaklinga með geðrænan vanda snerti flesta þræði samfélagsins og þar sé margt óunnið. 

Geðhjálp er landssamtök þeirra sem láta sig geðheilbrigðismál varða. Tilgangur félagsins er að vinna að geðheilbrigðismálum og bæta hag þeirra sem eiga við geðræn vandamál að stríða, barna og fullorðinna, svo og aðstandenda þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert