Hækkun persónuafsláttar ekki skilað meiru

Fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið. mbl.is/Ófeigur

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna „rangfærslna í umfjöllun um breytingar á tekjuskattskerfinu á næsta ári og skattalækkun sem kynnt var í tengslum við fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2020“.

Fram kemur að kynnt hafi verið skattalækkun í tveimur áföngum í stað þriggja, 1. janúar 2020 og 1. janúar 2021, í tengslum við fjárlagafrumvarp næsta árs. „Mun ábati hennar skila sér strax til allra tekjutíunda. Þegar lækkunin er að fullu komin fram munu ráðstöfunartekjur heimilanna aukast um 21 ma.kr. á ári. Fyrir einstaklinga með tekjuskattsstofn í kringum 350 þúsund krónur þýðir það 125 þúsund króna skattalækkun á ári.“

Strax um næstu áramót komi til framkvæmda fyrri hluti skattkerfisbreytingarinnar. „Skattgreiðslur fólks með tekjur við fyrstu þrepamörkin munu lækka um 42 þúsund krónur á næsta ári. Þá hefur að sjálfsögðu verið tekið tillit til lækkunar persónuafsláttar sem beitt er í samspili við upptöku nýs lægsta þreps, til að beina þunga lækkunarinnar til þeirra sem eru um eða undir meðaltekjum.“

Bent er á að hækkun persónuafsláttar í stað nýs grunnþreps hafi ekki skilað meiri ávinningi til tekjulægstu hópanna. „Sú aðferð hefði þvert á móti skilað mun minni ávinningi til lágtekjuhópa og hefði auk þess skilað sömu krónutölu upp allan tekjustigann. Lækkun persónuafsláttar hefði þannig einungis í för með sér 5.800 kr. ávinning og hefði sá ávinningur farið upp allan tekjustigann. Hefði lækk­un per­sónu­afslátt­ar átt að skila 10 þ. kr. hærri ráðstöf­un­ar­tekj­um hefði slík breyt­ing kostað ríf­lega 31 ma.kr.“

Þá verði samsköttun hjóna/sambúðarfólks, sem geri fólki kleift að samnýta persónuafslátt, áfram heimil í skattkerfinu. „Að auki er rétt að árétta að heimild til samnýtingar skattþrepa, sem innleidd var í skattkerfið 2010, verður einnig óbreytt í nýju skattkerfi. Það er því rangt sem haldið hefur verið fram að verið sé að hækka skatta um 3 ma. kr. Breytingar á skattkerfinu munu þvert á móti lækka skatta allra tekjutíunda og skila sem fyrr segir 21 ma.kr. í auknar ráðstöfunartekjur á ári til heimilanna.“

Uppfært 13:12

Fjármálaráðuneytið hefur sent frá sér leiðréttingu en í upphaflegri tilkynningu ráðuneytisins var talað um að „hefði lækkun persónuafsláttar átt að skila 10. þ. kr. lægri ráðstöfunartekjum“. Þarna á að standa „hærri“ og hefur það verið leiðrétt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert