Höfnuðu einu frumvarpi af 262

Þingfundum 149. löggjafarþings lauk 2. september.
Þingfundum 149. löggjafarþings lauk 2. september. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þingfundum 149. löggjafarþings var frestað 2. september. Þingið hafði verið að störfum frá 11. september í fyrra með hléum.

Af 262 frumvörpum sem voru lögð fram urðu 123 að lögum, 135 voru óútrædd, tveimur var vísað til ríkisstjórnarinnar, eitt kallað aftur og eitt var ekki samþykkt.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alþingi.

Þingfundir voru samtals 133 og stóðu í rúmar 886 klukkustundir. Meðallengd þingfunda var sex klukkustundir og 39 mínútur. Lengsti þingfundurinn stóð í heilan sólarhring og 16 mínútum betur. Lengsta umræðan var um innleiðingu þriðja orkupakka Evrópusambandsins og stóð hún í samtals 147 klukkustundir.

Skriflegar skýrslur sem voru lagðar fram voru 24 talsins, þar af fjórar samkvæmt beiðni. Alls komu fram 16 beiðnir um skýrslur, 14 til ráðherra og tvær til ríkisendurskoðanda. Átta munnlegar skýrslur ráðherra voru fluttar.

Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 570. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 49 og var þeim svarað en ein var afturkölluð. Skriflegar fyrirspurnir voru 520 og var 477 þeirra svarað, 15 voru kallaðar aftur en 28 skrifleg svör bárust ekki.

Þingmál til meðferðar í þinginu voru 1.025 og tala prentaðra þingskjala var 2.107.

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 264 og sérstakar umræður voru 35 talsins.

Þá voru haldnir 572 fundir hjá fastanefndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert