Tap upp á 240 milljónir

Frjáls fjölmiðlun rekur m.a. DV.
Frjáls fjölmiðlun rekur m.a. DV. mbl.is/Arnar

Frjáls fjölmiðlun ehf., útgefandi DV, dv.is og undirmiðla, var rekin með tæplega 240 milljóna króna tapi á síðasta ári. Svokölluð EBITDA-afkoma, fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, var neikvæð um 214 milljónir króna. Rekstrartekjur námu 380 milljónum króna. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins og í tilkynningu á vef DV.

„Í lok síðasta árs var ráðist í umfangsmiklar aðhaldsaðgerðir hjá Frjálsri fjölmiðlun sem munu skila sér að fullu þegar afkoma yfirstandandi árs liggur fyrir. Breytingar til batnaðar eru miklar milli ára. Árið 2018 var fyrsta heila rekstrarár félagsins og það það tók tíma að ná tökum á rekstrinum og grípa til nauðsynlegra aðgerða,“ segir Karl Garðarsson, framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar. „Félagið í dag er allt annað og öflugra en á síðasta ári.“

Karl segir Frjálsa fjölmiðlun reka einn stærsta vefmiðil landsins, og þar að auki hafi vikublað DV haldið sessi meðan keppinautar á markaði hafi margir þurft að sætta sig við minni lestur. 

Karl segir enn fremur að fjölmiðlaheimurinn sé að breytast hratt og segir: „Og ekki hjálpar það forskot sem RÚV er með í formi auglýsinga og styrkja úr ríkissjóði.“

Karl Garðarsson, framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar.
Karl Garðarsson, framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar.

Að sögn Karls benda afkomutölur flestra einkarekinna fjölmiðla til þess að staðan sé mjög alvarleg og það geti grafið undan því mikilvæga hlutverki sem þeir gegna í þjóðfélaginu. Það sé því áríðandi að bregðast skjótt við til að styrkja lýðræðislega umræðu í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert