Lítið hlaup er í gangi í Skaftá. Rennsli hefur aukist lítillega en rafleiðni hefur aukist jafnt og þétt síðan fyrir helgi og er nú um 290 míkróS/cm.
Hlaupið kemur úr Vestari-Skaftárkatli en síðast hljóp úr katlinum í ágúst 2018 og er því ekki búist við að um stórt hlaup verði að ræða, að því er segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Fólki er bent á að staldra ekki lengi við nálægt upptökum árinnar vegna hugsanlegrar gasmengunar. Fylgst verður með gangi mála á Veðurstofunni.