Undirrituðu loftslagsyfirlýsingu á degi íslenskrar náttúru

Forsvarsmenn tuttugu fyrirtækja og stofnana undirrituðu í dag loftslagsyfirlýsingu Akureyrarbæjar …
Forsvarsmenn tuttugu fyrirtækja og stofnana undirrituðu í dag loftslagsyfirlýsingu Akureyrarbæjar og Festu - miðstöðvar um samfélagsábyrgð við hátíðlega athöfn í Lystigarðinum á Akureyri. Ljósmynd/Aðsend

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, undirritaði í dag, á degi íslenskrar náttúru, loftslagsyfirlýsingu Akureyrarbæjar og Festu - miðstöðvar um samfélagslega ábyrgð, ásamt forsvarsmönnum 19 annarra fyrirtækja og stofnana. 

Í yfirlýsingunni felst skuldbinding til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif með markvissum aðgerðum, svo sem að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, minnka myndun úrgangs og mæla árangurinn og gefa reglulega út upplýsingar um stöðuna. 

Ásthildur segir mikilvægt að sem flest fyrirtæki í bænum leggi lóð sitt á vogarskálarnar. „Akureyrarbær er í fremstu röð sveitarfélaga á Íslandi þegar kemur að því að flokka og endurnýta, og það er markmið okkar að sveitarfélagið verði kolefnishlutlaust á allra næstu árum. Við þurfum öll að leggjast á eitt til þess að svo megi verða. Til að breyta heiminum þurfum við fyrst að breyta okkur sjálfum, margt smátt getur orðið eitthvað risastórt,“ er haft eftir Ásthildi í tilkynningu. 

Loftslagsyfirlýsingin var þróuð af Festu og Reykjavíkurborg og var fyrst undirrituð í Höfða árið 2015 af forstjórum yfir eitt hundrað fyrirtækja og stofnana í aðdraganda Parísarráðstefnunnar um loftslagsmál.

Síðan þá hafa fleiri fyrirtæki bæst í hópinn. „Í framhaldi af því að fylgja eftir yfirlýsingunni kom í ljós þörf á samræmdum mælikvörðum til að meta og bera saman árangur í loftslagsmálum,“ segir í tilkynningu. Til að svara þeirri þörf var loftslagsmælir Festu þróaður og hefur nú verið uppfærður í 2. útgáfu á heimasíðu Festu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert