Loftslagsráð tekið til starfa

Nýtt loftslagsráð.
Nýtt loftslagsráð. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Nýtt loftslagsráð kom saman í fyrsta sinn í gær en því er ætlað að vera stjórnvöldum til ráðgjafar um stefnumarkandi ákvarðanir sem tengjast loftslagsmálum á Íslandi. Þetta er í annað sinn sem loftslagsráð er skipað.

Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

Þar segir að með breytingum sem Alþingi samþykkti á lögum um loftslagsmál í vor er loftslagsráð lögfest og tiltekið að í ráðinu skuli eiga sæti fulltrúar frá tilteknum aðilum en að auki er gert ráð fyrir að umhverfis- og auðlindaráðherra hafi heimild til að skipa fulltrúa annarra, sem þörf er talin á að eigi sæti í ráðinu á hverjum tíma. 

Ráðherra bætir nú inn í ráðið fulltrúa ungs fólks sem undanfarið hefur m.a. beitt sér í loftslagsmálum. Einnig bætast við fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands og Viðskiptaráði Íslands, auk þess sem fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur verið fjölgað í tvo.

Auk formanns, varaformanns og framangreindra fulltrúa sitja í loftslagsráði fulltrúar frá Bændasamtökum Íslands, Festu - miðstöð um samfélagsábyrgð, Neytendasamtökunum, háskólasamfélaginu, Samtökum atvinnulífsins og umhverfisverndarsamtökum.
Sem fyrr er formaður ráðsins Halldór Þorgeirsson, fyrrverandi yfirmaður hjá skrifstofu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC), skipaður af umhverfis- og auðlindaráðherra. Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands, er áfram varaformaður og skipuð af umhverfis- og auðlindaráðherra.

Í ráðinu eiga að auki sæti:

  • Sigurður Thorlacius, fulltrúi ungs fólks, skipaður af umhverfis- og auðlindaráðherra,
  • Maríanna Traustadóttir sérfræðingur, tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands,
  • Sigurður Eyþórsson framkvæmdastjóri, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands,
  • Jóhanna Harpa Árnadóttir stjórnarmaður, tilnefnd af Festu - miðstöð um samfélagsábyrgð,
  • Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir prófessor, tilnefnd af samstarfsnefnd háskólastigsins,
  • Steingrímur Jónsson prófessor, tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins,
  • Sævar Helgi Bragason jarðfræðingur, tilnefndur af Neytendasamtökunum,
  • Hrefna Karlsdóttir sérfræðingur, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins,
  • Hrönn Hrafnsdóttir verkefnisstjóri, tilnefnd af Samtökum íslenskra sveitarfélaga,
  • Ragnar Frank Kristjánsson sviðsstjóri, tilnefndur af Samtökum íslenskra sveitarfélaga,
  • Árni Finnsson frá Náttúruverndarsamtökum Íslands, tilnefndur sameiginlega af umhverfisverndarsamtökum,
  • Ragnhildur Freysteinsdóttir frá Skógræktarfélagi Íslands, tilnefnd sameiginlega af umhverfisverndarsamtökum,
  • Gunnar Dofri Ólafsson lögfræðingur, tilnefndur af Viðskiptaráði Íslands.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert