„Mannkynið er í kapphlaupi við tímann“

„Mannkynið er í kapphlaupi við tímann en farsæld þjóða til …
„Mannkynið er í kapphlaupi við tímann en farsæld þjóða til framtíðar mun ráðast af því hvernig þeim tekst að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, auka kolefnisbindingu og ná árangri í baráttunni gegn loftslagsvánni.“ Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, á stofnfundi samstarfsvettvangs um loftslagsmál og grænar lausnir sem haldinn var í dag Ljósmynd/Aðsend

„Mannkynið er í kapphlaupi við tímann en farsæld þjóða til framtíðar mun ráðast af því hvernig þeim tekst að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, auka kolefnisbindingu og ná árangri í baráttunni gegn loftslagsvánni.“ Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á stofnfundi samstarfsvettvangs um loftslagsmál og grænar lausnir sem haldinn var í dag að því er fram kemur í tilkynningu. Hátt í tvö hundurð manns voru á stofnfundinum.  

„Grænar lausnir spretta upp í fyrirtækjum landsins og skapa ómæld útflutningsverðmæti. Atvinnulífið styður eindregið markmið um kolefnishlutleysi hér á landi bæði með því að draga úr losun kolefnis og að auka bindingu þess í jarðlögum og gróðri.“ Þetta sagði Halldór Benjamín Þorbergsson í ávarpi sínu, segir ennfremur í tilkynningu. 

Markmið samstarfsvettvangsins er í fyrsta lagi að efla samstarf atvinnulífs og stjórnvalda við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stuðla að kolefnishlutleysi árið 2040. Í öðru lagi mun vettvangurinn vinna með fyrirtækjum að markaðssetningu grænna lausna á alþjóðamarkaði. Í þriðja lagi er vettvangnum ætlað að styðja við orðspor Íslands sem leiðandi lands á sviði sjálfbærni.

Að samstarfsvettvanginum standa forsætisráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið, utanríkisráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið; Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Orkuklasinn, Viðskiptaráð Íslands, Bændasamtök Íslands, háskólar og Íslandsstofa, auk fjölda fyrirtækja.

Samstarfsvettvangurinn er hýstur innan Íslandsstofu og vinnur í nánu samstarfi við hana.

Hátt í 200 manns voru á stofnfundinum.
Hátt í 200 manns voru á stofnfundinum. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert