Unglingur með lungnasjúkdóm eftir notkun á rafrettu

Íslenskur unglingur hefur greinst með lungnasjúkdóm sem rekja má til …
Íslenskur unglingur hefur greinst með lungnasjúkdóm sem rekja má til notkun rafretta. mbl.is/Kristinn Magnússon

Nýverið greindist lungnasjúkdómur hjá unglingi þar sem grunur leikur á að veikindin tengist notkun á rafrettum. Birtingarmynd sjúkdómsins svipar til þess sem lýst hefur verið í Bandaríkjunum. Viðkomandi er á batavegi. Þetta kemur fram á vef Embætti landlæknis. 

Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með börnum sínum og skólastjórnendur eru hvattir til að framfylgja banni á rafrettum í skólum. Skipaður hefur verið vinnuhópur sem ætlað er að skoða aðgerðir til að vinna gegn faraldri rafrettunotkunar hjá börnum. Embætti landlæknis fylgist áfram grannt með í samstarfi við sérfræðinga í lungnasjúkdómum, heilsugæslulækna og sérfræðinga í tóbaksvörnum.

„Flest er enn á huldu um faraldur alvarlegra lungnasjúkdóma í Bandaríkjunum. Tilkynnt tilfelli eru yfir 500 og tengjast öll notkun á rafrettum. Vitað er að stór hluti þeirra sem veikst hafa hafi notað rafrettu-vökva sem innihélt afleiður kannabiss en svo virðist sem veikindin séu ekki einungis bundin við það.“ Segir ennfremur á vef embættisins. 

Að gefnu tilefni vill landlæknir koma eftirfarandi á framfæri: 

  1. Börn eiga ekki að nota rafrettur, hvaða nöfnum sem þær nefnast og varar landlæknir sterklega við því. Vitað er að fjöldi barna hefur prófað rafrettur og umtalsverður hluti notar þær að staðaldri, eða um 10% ungmenna í 10. bekk. Kannanir gefa til kynna að hlutfall barna sem nota rafrettur hafi farið hratt hækkandi undanfarin ár. Foreldrar eru hvattir til að ræða þetta mál við börn sín.
  2. Skólastjórnendur og kennarar eru hvattir til að framfylgja banni við notkun rafretta á skólalóðum.
  3. Þeim sem vilja hætta tóbaksreykingum er bent á að nota viðurkennda meðferð við nikótínfíkn að viðhöfðu samráði við lækni; rafrettur eru ekki gagnreynd meðferð. Ekki er þó mælt með að fólk snúi frá rafrettum og aftur að tóbaksreykingum sem eru, miðað við núverandi þekkingu, skaðlegri.
  4. Þeir sem velja að nota rafrettur eru hvattir til að kaupa tæki og efni einungis af viðurkenndum söluaðilum. Hámarksstyrkleiki nikótínvökva er lögum samkvæmt 20 mg/ml og notendur rafretta sterklega varaðir við því að blanda vökva sjálfir.
  5. Einstaklingar sem nota rafrettur og fá einkenni frá lungum eins og hósta, uppgang, mæði og verk fyrir brjósti er ráðlagt að leita til læknis. Önnur einkenni sem lýst hefur verið í tengslum við rafrettunotkun í Bandaríkjunum eru einkenni frá meltingarvegi, líkt og ógleði, uppköst og niðurgangur, þreyta, hiti og þyngdartap.
  6. Læknar eru beðnir að vera á varðbergi gagnvart slíkum einkennum og spyrja skjólstæðinga sína um rafrettunotkun (leiðbeiningar verða birtar um hvað skal spyrja). Læknar eru beðnir að tilkynna tilvik þar sem grunur er um veikindi tengd rafrettunotkun til landlæknis, í síma 510-1900. Ef margar tilkynningar berast kemur til álita að virkja sérstakan greiningarkóða.
  7. Heilbrigðisyfirvöld munu skoða hvort gripið verði til viðbragða vegna mikillar rafrettunotkunar barna, t.d. með því að takmarka bragðefni og umbúðir sem höfða sérstaklega til þeirra.
  8. Neytendastofa sem fer með eftirlit með rafrettum hefur verið upplýst.
  9. Embætti landlæknis vinnur að skipan vinnuhóps sem ætlað er að skoða aðgerðir til að vinna gegn faraldri rafrettunotkunar hjá börnum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert