Karlmaðurinn sem fannst látinn við Sprengisandsleið á föstudag var tékkneskur og fæddur árið 1975. Búið er að hafa samband við aðstandendur hans og er krufning áætluð á morgun. Ekki er talið að neitt saknæmt hafi átt sér stað.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Það var lögreglumaður á frívakt sem gekk fram á lík mannsins rétt fyrir hádegi á föstudag. Maðurinn virtist hafa verið einn á ferð og er ekki talið að neitt saknæmt hafi átt sér stað við andlát hans.