Lögreglan á Suðurnesjum sektaði um helgina bílstjóra um 150.000 kr. fyrir að aka á 134 km hraða á svæði þar sem hámarkshraði er 90 km.
Nokkrir til viðbótar voru kærðir fyrir hraðakstur í umdæminu að því er fram kemur í dagbók lögreglu og fáeinir til viðbótar gerðust brotlegir við umferðarlög með öðrum hætti, svo sem með því að stinga af frá umferðaróhöppum.
Nokkur umferðaróhöpp urðu í umdæminu um helgina og rákust til að mynda jepplingur og flutningabifreið saman á Garðbraut. Ekki urðu þó slys á fólki.
Þá varð árekstur á hringtorgi á Reykjanesbraut þar sem ökumaður virti ekki biðskyldu við hringtorgið en ók viðstöðulaust inn á það og hafnaði á bifreið sem var þar fyrir. Ökumenn sluppu við meiðsl.