Talsvert dimmt var yfir efri byggðum Kópavogs og Reykjavíkur nú í morgunsárið þegar nokkuð þykk þoka lá þar yfir. Henni hefur hins vegar létt nokkuð fljótt nú þegar farið er að birta til.
Mun bjartara var yfir í neðri byggðum og ekki neina þoku þar að sjá.