Samfylkingin mælist næststærsti flokkurinn

Samfylkingin mælist með 18,5% fylgi og munar aðeins rúmu prósenti …
Samfylkingin mælist með 18,5% fylgi og munar aðeins rúmu prósenti á flokknum og Sjálfstæðisflokknum, sem mælist stærstur, með 19,6% fylgi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samfylkingin er næststærsti flokkur landsins samkvæmt nýrri könnun Zenter rannsókna sem framkvæmd var fyrir Fréttablaðið og Fréttablaðið.is. Flokkurinn mælist með 18,5% fylgi og munar aðeins rúmu prósenti á flokknum og Sjálfstæðisflokknum, sem mælist stærstur, með 19,6% fylgi. 

Í könnun MMR sem birt var í síðustu viku mældist Samfylkingin með 14,1% fylgi og var samkvæmt því þriðji stærsti flokk­ur­inn á þingi. 

Samkvæmt könnun Zenter er Vinstri græn þriðji stærsti flokkurinn á þingi, með 12,7% sem er örlítið minna en í síðustu könnun Zenter frá því september. Miðflokkurinn og Viðreisn tapa um einu prósenti og mælast með 11,6% og 11,3% fylgi.

Miðflokkurinn mælist því með töluvert minna fylgi en í könnun MMR, þar sem fylgi flokksins mældist 14,8% sem gerði hann að næststærsta flokknum á þingi. 

Píratar eru með 10,9% fylgi og Framsóknarflokkurinn með 7,3% fylgi samkvæmt könnun Zenter, Flokkur fólksins með 4% og aðrir með 4%. 

Aðeins rúm 70% aðspurðra svöruðu hvaða flokk þau kysu ef gengið yrði til kosninga í dag. 

Könnunin var gerð á tímabilinu 10.-14. október síðastliðinn en hún var send á könnunarhóp Zenter rannsókna. Í úrtaki voru 2.300 einstaklingar 18 ára og eldri en svarhlutfall var 53 prósent. Gögnin voru vigtuð eftir kyni, aldri og búsetu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert