Ársfundur SA í beinni

Fundurinn frem fram í Hörpu.
Fundurinn frem fram í Hörpu. mbl.is/Árni Sæberg

Tuttugu ár eru frá því Samtök atvinnulífsins voru stofnuð og verður tímamótunum fagnað á Ársfundi atvinnulífsins í dag, en bein útsending frá fundinum hefst kl. 14. Fundurinn fer fram í Eldborg í Hörpu og hægt er að fylgjast með útsendingunni hér á mbl.is. 

Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytja ávörp. Þá munu Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA, og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, líta yfir farinn veg. Rýna í það sem hefur áunnist frá 1999 og draga upp mynd af þeim áskorunum sem eru fram undan.

„Vatnaskil urðu á íslenskum vinnumarkaði þegar Þjóðarsáttin var gerð 1990 og á fundinum verður brugðið upp svipmynd af þessari sögulegu sátt. Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands Íslands 1980-1992, og Þórarinn Viðar Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Íslands 1986-1999, brjóta Þjóðarsáttina til mergjar. Nærri þrjátíu ár eru frá því samningurinn var gerður og áttatíu og fimm ár frá því VSÍ, forveri SA, var stofnað og því fjölmörg tilefni til að fagna í dag,“ segir í tilkynningu SA.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert