Harmar stöðuna á Reykjalundi

Frá Reykjalundi.
Frá Reykjalundi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hugarfar, félag fólks með ákominn heilaskaða og aðstandenda þeirra, harmar þá stöðu sem upp er komin á Reykjalundi vegna fyrirvaralausra uppsagna fyrrum framkvæmdastjóra og yfirmanns lækninga, Birgi Gunnarssonar og Magnúsar Ólasonar.

Starfshættir stjórnar SÍBS hafa skapað mikinn óróa á Reykjalundi sem hefur haft í för með sér að starfsmenn hafa lýst vantrausti á stjórn SÍBS og fjöldi lækna hefur sagt upp störfum. Þessi staða kemur til með að bitna á meðferð sjúklinga sem er grafalvarlegt mál, segir í yfirlýsingu Hugarfara.

Þar segir enn fremur að Hugarfar hafi í samstarfi við fyrrverandi stjórnendur og heilaskaðateymi Reykjalundar unnið markvisst að því að stuðla að framförum á meðferð þeirra sem hafa hlotið heilaskaða.

„Þrátt fyrir að heilaskaði er ein algengasta orsök áunninnar fötlunar hjá ungu fólki og ein meginorsök ótímabærs dauða þá er engin heildstæð stefna né langtíma meðferðarúrræði til staðar. Meðferðin sem fer fram á Reykjalundi er bráðnauðsynleg fyrir bata þessara einstaklinga og því skiptir sköpum að ró skapist um starfsemina þannig að sjúklingar fái faglega meðferð,“ segir í yfirlýsingunni en árlega verða um 900 manns fyrir heilaskaða. Einungis 80 fá greiningu og bráðameðferð vegna þess.

„Á síðastliðnum árum hefur átt sér stað öflug uppbygging heilaskaðateymis á Reykjalundi og mjög mikilvægt að það áframhald verði á því. Heilskaðateymið býr yfir mikilli þekkingu á afleiðingum höfuðhögga og heilaskaða. Sú þekking er af skornum skammti í heilbrigðiskerfinu. Samkvæmt tillögum heilbrigðisráðherra byggt á skýrslu starfshóps um stefnubreytingar í meðferð einstaklinga sem hlotið hafa heilaskaða þá stendur til að bæta meðferðina, m.a. á Reykjalundi. Mikilvægt að sú innleiðing gangi eftir með nýjum stjórnendum. Við erum jafnframt áhyggjufull fyrir hönd okkar skjólstæðinga enda er ástand þeirra mjög viðkvæmt og nauðsynlegt að ekki ríki órói í kringum starfsemi stofnunarinnar og tryggð sé áframhaldandi fagleg meðferð,“ segir Guðrún Harpa Heimisdóttir formaður Hugarfars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert