Koffínmagni í drykkjum settar meiri skorður hér á landi

mbl.is/Sigurður Bogi

Gengið er lengra í að setja skorður við koffínmagn í drykkjum á Íslandi en í flestum Evrópulöndum þar sem ótakmarkað magn er heimilt. Þetta kemur fram á vef Matvælastofnunar. Þar segir enn fremur að hér á landi sé sala koffínríkra orkudrykkja til barna yngri en 18 ára bönnuð og 320 mg/l hámark án sérstaks leyfis. Ef markaðssetja á drykk með hærra koffíninnihaldi þurfi að sækja um leyfi til Matvælastofnunar.

„Þegar sótt er um leyfi fyrir markaðssetningu koffíndrykkja/orkudrykkja sem innihalda meira en 320 mg/lítra fer fram áhættumat óháðra vísindamanna. Við áhættumat er notast við vísindaálit Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) en skv. því stafar neytendum ekki hætta af neyslu af 200 mg af koffíni í einum neysluskammti. Enginn orkudrykkur með markaðsleyfi hérlendis inniheldur meira en 200 mg í hverjum neysluskammti. Leyfisveiting tekur einnig tillit til skuldbindinga um frjálst vöruflæði skv. EES-samningnum,“ segir enn fremur.

Sé leyfi veitt fylgi það miklum takmörkunum, s.s. kröfu um varúðarmerkingu framan á vörunni og sölubann til barna yngri en 18 ára. „Matvælastofnun ákvarðar skilyrði til markaðssetningar og annast leyfisveitingu. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hefur eftirlit með að skilyrðum leyfisveitingar sé framfylgt af dreifingaraðila og á sölustað.“

Spurningar vakni í ljósi vísbendinga um aukningu á neyslu orkudrykkja meðal ungmenna hvort ástæða sé til að herða reglur um koffínmagn í matvælum, einkum í orkudrykkjum. Þetta sé á meðal þess sem verði til umfjöllunar á norrænu málþingi um orkudrykki og ungt fólk á morgun á Grand hóteli Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert