Skipar tvo starfshópa til að skoða kynrænt sjálfræði

Forsætisráðherra hefur skipað nefnd og tvo starfshópa í tengslum við …
Forsætisráðherra hefur skipað nefnd og tvo starfshópa í tengslum við lög um kynrænt sjálfræði. Ljósmynd/Aðsend

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað tvo starfshópa á grunni laga um kynrænt sjálfræði. Hóparnir eru skipaðir í samræmi við bráðabirgðaákvæði í lögunum og munu fjalla um tiltekin viðfangsefni og skila tillögum sínum innan árs. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.

Annar starfshópurinn mun fjalla um málefni barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni, þar á meðal um heilbrigðisþjónustu við þau, og gera tillögur um úrbætur. Jafnframt skal hópurinn semja frumvarp til laga um breytingar á lögum um kynrænt sjálfræði, sem feli í sér að bætt verði við lögin ákvæði sem fjallar um breytingar á kyneinkennum barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni.

Starfshópinn skipa; Lára Björnsdóttir, formaður, Guðríður Bolladóttir, lögfræðingur með sérþekkingu á réttindamálum barna, Kári Hólmar Ragnarsson, lögfræðingur með sérþekkingu á mannréttindum, Kitty Anderson, tilnefnd af Intersex Ísland, Kristján Óskarsson, barnaskurðlæknir, María Helga Guðmundsdóttir, tilnefnd af Samtökunum ´78, Páll Rafnar Þorsteinsson siðfræðingur, Ragnar Bjarnason barnainnkirtlalæknir, Sigríður Snorradóttir barnasálfræðingur, Svandís Anna Sigurðardóttir kynjafræðingur.

Intersex.
Intersex. mbl.is/Kristinn Garðarsson

Hinn starfshópurinn mun fjalla um og gera tillögur um breytingar á öðrum lögum sem nauðsynlegar eru til að tryggja réttindi trans fólks og intersex fólks, þar á meðal barnalögum, nr. 76/2003, og lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna, nr. 55/1996, svo og reglum um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna aðgerða sem tengjast kynleiðréttingu. Enn fremur er starfshópnum, m.a. í samvinnu við Barnaverndarstofu, umboðsmann barna og hagsmunasamtök hinsegin fólks, ætlað að endurskoða aldursviðmið til lækkunar vegna réttar til að breyta skráningu kyns.

Aðalmenn í þeim starfshópi eru; Aagot Vigdís Óskarsdóttir, formaður, Kristín Ninja Guðmundsdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneyti, Linda Rós Alfreðsdóttir, tilnefnd af félagsmálaráðuneyti, Skúli Þór Gunnsteinsson, tilnefndur af samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, Svanhildur Þorbjörnsdóttir, tilnefnd af dómsmálaráðuneyti.

Þá hefur forsætisráðherra skipað nefnd á grundvelli 9. gr. laganna sem mun fjalla um ósk barns um breytingu á skráðu kyni sínu ef það nýtur ekki stuðnings forsjáraðila sinna, annars eða beggja, til að breyta opinberri skráningu kyns síns, sbr. 3. mgr. 5. gr. laganna. Skipunartími er frá 14. október 2019 til næstu fjögurra ára.

Aðalmenn nefndarinnar eru; Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir, tilnefnd af Sálfræðingafélagi Íslands, Elísabet Gísladóttir, tilnefnd af dómsmálaráðherra, og Ragnar Bjarnason, tilnefndur af Embætti landlæknis. Varamenn nefndarinnar eru; Svanhildur Þorbjörnsdóttir, tilnefnd af dómsmálaráðherra, og Soffía Guðrún Jónasdóttir, tilnefnd af Embætti landlæknis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert