„Ekki annað hægt en að kalla þetta árás“

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir málið staðfestingu á því …
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir málið staðfestingu á því sem fólk hjá Samherja hefur lengi haldið fram. Ljósmynd/Þórhallur Jónsson

„Fyrir mér staðfestir þetta það sem var í raun augljóst, að RÚV og Seðlabanki Íslands skipulögðu það saman hvernig átti að standa að þessari húsleit. Að sjálfsögðu er manni aðeins brugðið þegar þetta kemur upp eftir öll þessi ár.“

Þetta segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í samtali við mbl.is, um meintan upplýsingaleka frá fyrrverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands, Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, til fréttamanns RÚV í tengslum við húsleit hjá Samherja árið 2012. Forsætisráðherra hefur vísað málinu til lögreglu.

Rannsókn innri endurskoðanda Seðlabankans hefur leitt í ljós að þáverandi fram­kvæmda­stjóri gjald­eyris­eft­ir­lits Seðlabank­ans átti í tölvu­póst­sam­skipt­um við starfs­mann RÚV í rúm­an mánuð áður en ráðist var í hús­leit hjá Sam­herja 27. mars árið 2012.

Þetta kem­ur fram í bréfi Seðlabanka Íslands frá 18. ág­úst 2019 til for­sæt­is­ráðherra sem mbl.is hef­ur í hönd­un­um. Rétt er að taka fram að í tölvu­póst­sam­skipt­um fram­kvæmda­stjór­ans við frétta­mann­inn voru eng­ar trúnaðar­upp­lýs­ing­ar en fréttamaður RÚV virðist hafa vitað af fyr­ir­hugaðri hús­leit. 

Ruddaleg framkvæmd sem gekk út á að valda tjóni

„Þessi aðgerð var mjög ruddalega framkvæmd og var í beinni útsendingu. Því til viðbótar var send út tilkynning um allan heim frá Seðlabankanum fljótlega eftir að húsleit hófst þannig að það var ljóst að það var búið að undirbúa það líka,“ segir Þorsteinn og bætir því við að aðgerðin hafi meðal annars verið til þess fallin að valda tjóni.

„Þetta gekk út á það að hluta til að valda tjóni og meiða fólk og þetta hitti mjög marga starfsmenn Samherja illa. Það var verið að ráðast á fyrirtæki og starfsfólk þess. Það er ekki annað hægt en að kalla þetta árás og RÚV var gerandi með Seðlabankanum í þessu máli. Það er í raun það sem er verið að staðfesta,“ bætir hann við.

Stjórn Samherja og Þorsteinn Már hafa þegar kært fimm fyrrum stjórnendur Seðlabankans til lögreglu vegna ætlaðra brota þeirra í starfi. Meðal þeirra eru Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, og Ingibjörg Guðbjartsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri gjaldeyriseftirlits Seðlabankans.

Einstaklingar fái tjón sitt aldrei bætt

Spurður hvort að þessar nýju upplýsingar muni hafa áhrif á þá kæru svarar Þorsteinn því neitandi.

„Nei við erum með mál í gangi og komum ekkert meira að þessu máli. Þetta er fyrst og fremst staðfesting á því sem við höfum haldið fram, sagt og hugsað. Aftur á móti verður þetta notað í þeim málaferlum sem eru í gangi núna þar sem við höfum farið fram á það að Seðlabanki Íslands greiði hluta af þeim beina kostnaði sem við [Samherji] urðum fyrir við það að verja okkur. Seðlabankinn mun aldrei bæta einstaklingum það tjón sem þeir hafa orðið fyrir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert