Andlát: Gunnar Karlsson

Dr. Gunnar Karlsson, sagnfræðingur og prófessor emeritus.
Dr. Gunnar Karlsson, sagnfræðingur og prófessor emeritus. Ljósmynd/Aðsend

Dr. Gunnar Karlsson, sagnfræðingur og prófessor emeritus, lést á hjartadeild Landspítalans mánudaginn 28. október. Hann fæddist í Efstadal í Laugardal 26. september 1939, sonur hjónanna Karls Jónssonar og Sigþrúðar Guðnadóttur, bænda í Gýgjarhólskoti í Biskupstungum, þar sem Gunnar ólst upp í níu systkina hópi.

Gunnar lauk kandídatsprófi frá Háskóla Íslands 1970 og doktorsprófi frá sama skóla 1978. Hann kenndi við University College í London 1974–1976, varð lektor í sagnfræði við HÍ 1976 og prófessor 1980.

Gunnar skrifaði fjölmargar kennslubækur í sögu fyrir öll skólastig, frá grunnskóla og upp í háskóla, hann skrifaði hluta af stórum ritum eftir marga höfunda, til dæmis Sögu Íslands og ritstýrði við þriðja mann útgáfu á Grágás. Meðal fræðirita hans má nefna doktorsritgerð hans, Frelsisbaráttu Suður-Þingeyinga og Jón á Gautlöndum, Íslandssöguna Iceland’s 1100 Years: History of a Marginal Society, Ástarsögu Íslendinga að fornu og ritið Goðamenning: staða og áhrif goðorðsmanna í þjóðveldi Íslendinga, grundvallarrit um eitt merkilegasta tímabil í íslenskri sögu.

Eftirlifandi eiginkona Gunnars er Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur. Dætur Gunnars eru Sif, Sigþrúður og Elísabet. Barnabörnin eru sjö.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert