Starfsstjórn skipuð yfir Reykjalundi

Starfsstjórn verður skipuð yfir Reykjalundi. Þetta var ákveðið á fundi …
Starfsstjórn verður skipuð yfir Reykjalundi. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar SÍBS. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn SÍBS samþykkti á fundi sínum í dag að skipuð verði þriggja manna starfsstjórn yfir rekstur Reykjalundar endurhæfingarmiðstöðvar SÍBS. Þetta kemur fram í yfirlýsingu SÍBS. 

„Starfsstjórnin verður skipuð yfir Reykjalund og mun vinna að málefnum stofnunarinnar án aðkomu stjórnar SÍBS. Starfsstjórnin fær einnig það hlutverk að vinna tillögur um rekstrargrundvöll Reykjalundar til framtíðar. Framkvæmdastjórn Reykjalundar fer eftir sem áður með daglegan rekstur stofnunarinnar.“ Segir í tilkynningu. 

Á haustþingi SÍBS árið 2018 var ákveðið að hefja vinnu við endurskoðun stjórnskipulags samtakanna. Tekið er fram að stjórnin telji mikilvægt að ljúka endurskoðuninni með framtíð Reykjalundar í huga. 

Fyrr í dag greindu all­ir níu sál­fræðing­arn­ir sem starfa á Reykjalundi að allir í fram­kvæmda­stjórn Reykjalund­ar þurfi að víkja og stjórn SÍBS verði að hætta af­skipt­um af starf­semi Reykjalund­ar áður en meiri skaði hlýst af. Sál­fræðing­arn­ir hafa all­ir velt því fyr­ir sér að segja upp störf­um.

Þá hafa 8 af 12 læknum Reykjalundar sagt starfi sínu lausu að undanförnu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert