Óskar eftir fundi með ráðherra

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Biskup Íslands hefur óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra til að ræða stöðu hælisleitenda í ljósi þess að barnshafandi konu var vísað úr landi s.l. nótt með tveggja ára barni sínu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Agnesi M. Sigurðardóttur, biskupi Íslands.

Þar segir enn fremur að það sé ólíðandi að senda barnshafandi konu burt í óvissu of örbyrgð.

„Það er mannréttindabrot og gengur þvert á skilyrðilausa kærleiksskyldu kristinna manna.
Biskups Íslands hefur óskað eftir því að prestur innflytjenda sr. Toshiki Toma, ásamt sr. Ásu Laufey Sæmundsdóttir og sr. Evu Björk Valdimarsdóttur, sem séð hafa um þjónustu við hælisleitendur, fylgi málinu eftir,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert