Þétta byggð í kringum Valhöll

Tölvuteiknuð mynd frá horninu þar sem Valhöll stendur.
Tölvuteiknuð mynd frá horninu þar sem Valhöll stendur. Ljósmynd/Sigurborg

Samþykkt var á fundi skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar í gær að heimila uppbyggingu skrifstofubyggingar og íbúðarhúsnæðis við Háaleitisbraut 1 í höfuðborginni. Valhöll er á lóðinni en þar má finna skrifstofur Sjálfstæðisflokksins auk tannlæknastofu.

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, fagnar áformunum á Twitter-síðu sinni.

Hún greinir þar frá því að á horninu rísi 47 nýjar íbúðir og fimm hæða skrifstofubygging. 

Bíla- og hjólastæðum fjölgar.
Bíla- og hjólastæðum fjölgar. Ljósmynd/Sigurborg

Við Valhöll eru nú 88 bílastæði en þau verða 125 og hjólastæðum fjölgar úr engu í 115.

Þétting byggðar er alltaf góð. Líka í kringum Valhöll,“ skrifar Sigurborg.

Fram kemur í fundargerð skipulags- og samgönguráðs borgarinnar að í tillögunni felist að tveimur nýjum byggingarreitum verði bætt við á lóð Háaleitisbrautar 1 auk þess sem heimilt verður að stækka hús Veitna við Bolholt 5.

Næst Kringlumýrarbraut verður heimilt að reisa fimm hæða skrifstofubyggingu með bílakjallara. Á horni Skipholts og Bolholts verður heimilt að reisa sex hæða íbúðarhús með bílakjallara ásamt þjónustu- og verslunarrými á 1. hæð.

Ljósmynd/Sigurborg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert