Stjórnvöld koma að byggingu húsnæðis í Búðardal

Ásmundur Einar Daðason ráðherra og Kristján Sturluson sveitarstjóri við undirritunina …
Ásmundur Einar Daðason ráðherra og Kristján Sturluson sveitarstjóri við undirritunina í Búðardal í dag. Ljósmynd/Steinunn Matthíasdóttir

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherraog Kristján Sturluson sveitarstjóri Dalabyggðar skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um aðkomu stjórnvalda að uppbyggingu á leiguhúsnæði í Búðardal. Snýr hún að því að fjölga leiguíbúðum í sveitarfélaginu, en mikill skortur hefur verið á íbúðarhúsnæði í Dalabyggð um lengri tíma.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Þar segir einnig að í dag hafi fyrsta skóflustungan verið tekin að fimm leiguíbúðum sem byggja á í bænum, en nánast ekkert íbúðarhúsnæði hefur verið byggt í Búðardal í nærri áratug.

Skrifað var undir viljayfirlýsinguna á opnum kynningarfundi um húsnæðismál á landsbyggðinni í Dalakoti í Búðardal. Á fundinum fór Ásmundur Einar yfir þær aðgerðir sem gripið hefur verið til að undanförnu til þess að bregðast við erfiðu ástandi á húsnæðismarkaði, ekki hvað síst á landsbyggðinni. Fór hann sérstaklega yfir aðgerðir í tengslum við landsbyggðarverkefni Íbúðalánasjóðs en Dalabyggð er eitt þeirra sveitarfélaga sem valið var til þátttöku í verkefninu.

„Fimm nýjar íbúðir þykir í stóra samhenginu kannski ekki ýkja mikið en víða á landsbyggðinni geta þær bylt húsnæðismarkaðnum á viðkomandi svæði. Ekki eingöngu vegna þess að sveitarfélögin eru minni heldur einnig vegna þess að víða hefur lítið sem ekkert verið byggt af nýju íbúðarhúsnæði árum saman,“ er haft eftir Ásmundi Einari á vef stjórnarráðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert