Umtalsvert magn af fíkniefnum og lyfseðilsskyldum lyfjum fannst við húsleit sem lögreglan á Suðurnesjum fór í, að fenginni heimild, í íbúðarhúsnæði um helgina. Um er að ræða hvít fíkniefni, e-töflur, metamfetamín og sterk verkjalyf. Einnig fannst kindabyssa á staðnum ásamt skotfærum. Jafnframt fjármunir sem grunur leikur á að séu ágóði af fíkniefnasölu.
Húsráðandi játaði fyrir lögreglumönnum á vettvangi að stunda fíkniefnasölu en neitaði að tjá sig um flest atriði sakarefnisins við skýrslutöku á lögreglustöð.
Þá fundust fíkniefni, sterar og hnúajárn við húsleit sem lögreglan á Suðurnesjum fór í um helgina. Húsráðandi var handtekinn vegna vörslu á fíkniefnum, brots á lyfjalögum og vopnalögum. Hann játaði brot sín og var látinn laus að lokinni skýrslutöku á lögreglustöð.
Enn fremur kom manneskja með fíkniefni í poka á lögreglustöðina í Reykjanesbæ um helgina en efnin hafði hún fundið í innkeyrslunni heima hjá sér.