Umfjöllun um meint afskipti fjarstæðukennd

Fundurinn fór fram um helgina.
Fundurinn fór fram um helgina. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórnarskrárfélagið segir að umfjöllun um meint afskipti félagsmanna af rökræðukönnuninni sjálfri sé fjarstæðukennd enda hafi forstöðumaður Félagsvísindastofnunar komið því skýrt á framfæri að viðvera örfárra einstaklinga úr félaginu hafi engin áhrif haft á fundinn. Félagið fagnar aftur á móti opinni umræðu um stjórnarskrármál. 

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu, sem er send í tilefni af rökræðukönnun um stjórnarskrá sem haldin var í Laugardalshöll um helgina og umfjöllun Morgunblaðsins um málið.

Stjórnarskrárfélagið segir að í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012 hafi 2/3 hlutar kjósenda stutt tillögur sem skyldu verða grundvöllur nýrrar stjórnarskrár, að undangengnu löngu og lýðræðislegu ferli.

„Rökræðukönnunin hefði hæglega getað unnið með þær tillögur kjósenda til að fá úr því skorið hvort fólk sé þeim almennt sammála eða hvort einhverju þyrfti að breyta. Með því móti hefðu lýðræðisleg vinnubrögð verið virt og ekki gengið þvert gegn afgerandi niðurstöðu úr lögmætri þjóðaratkvæðagreiðslu. Fólk úr stjórn félagsins reyndi á fyrri stigum að koma ábendingum um þetta á framfæri við undirbúningsnefnd og skipuleggjendur rökræðukönnunarinnar en án árangurs,“ segir í yfirlýsingunni.

Þrátt fyrir þetta fagni félagið opinni umræðu um stjórnarskrármál og ákvað að gefa þeim gestum í Laugardalshöll sem vildu eintak af nýju stjórnarskránni.

„Umfjöllun mbl.is og leiðarahöfundar Moggans um meint afskipti félagsmanna af rökræðukönnuninni sjálfri er fjarstæðukenndur [sic] enda hefur forstöðumaður Félagsvísindastofnunar komið því skýrt á framfæri að viðvera örfárra einstaklinga úr félaginu hafi engin áhrif haft á fundinn, sem reyndar var öllum opinn þótt það hafi ekki farið hátt. Fréttaflutningur sem þessi er samt sem áður góð áminning um þau sérhagsmunaöfl sem standa að útgerð Morgunblaðsins og undir viðvarandi taprekstri þess.

Stjórnarskrárfélagið skorar á alla sem vilja standa vörð um lýðræði í landinu að notfæra sér umræðuna um stjórnarskrárbreytingar og þrýsta á um gildistöku nýju stjórnarskrárinnar, sem því miður hefur fengið að safna ryki innan veggja Alþingis síðastliðin sjö ár. Þjóðin er stjórnarskrárgjafinn,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert