Sérhannað flygildi til að fylgjast með og smala hreindýrum

Stefán Hrafn Magnússon (t.v.), Ingvar Garðarsson (t.h.), og Jón H. …
Stefán Hrafn Magnússon (t.v.), Ingvar Garðarsson (t.h.), og Jón H. Arnarson hafa unnið að þróun flygildis til hreindýrasmölunar á Grænlandi. mbl.is/Árni Sæberg

Félagarnir Stefán Hrafn Magnússon (t.v.), hreindýrabóndi á Grænlandi, Ingvar Garðarsson (t.h.), framkvæmdastjóri og meðeigandi Stefáns að hreindýrabúinu, og Jón H. Arnarson (fremst), verkfræðingur og sérfræðingur um ómönnuð flugför, hafa unnið að því undanfarið að þróa og hanna flygildi sem hægt er að nota við hreindýrasmölun á Grænlandi.

Tækið er nú orðið flughæft. Það er búið bensínknúinni ljósavél sem hleður rafgeyma sem aftur knýja loftskrúfurnar. Dróninn er fjarstýrður og búinn fullkominni myndavél.

Sjá umfjöllun um mál þetta og tækni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert