75 umsóknir um forstöðumannastöður á Landspítalanum

mbl.is/Hjörtur

75 umsóknir frá 70 frambærilegum einstaklingum bárust um stöður 11 forstöðumanna á Landspítalanum. Þetta kemur fram í vikulegum pistli Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítalans sem segir „ærið verkefni“ að vinna úr þeim góðu umsóknum sem bárust.

Strax í næstu viku muni þó fara fram viðtöl vegna þessara starfa, enda sé gert ráð fyrir að nýir forstöðumenn hefji störf strax 1. janúar á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert