Lögreglan óskar eftir vitnum

mbl.is/Eggert

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á mótum Suðurlandsvegar og Heiðmerkurvegar í morgun. Tilkynning um slysið barst lögreglu rúmlega níu í morgun og mbl.is greindi frá því skömmu síðar.

Áreksturinn varð á milli nokkurra bifreiða og voru fjórir fluttir á slysadeild.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður þá sem urðu vitni að árekstrinum um að hafa samband og má koma upplýsingum á framfæri í tölvupósti á netfangið finnbogi@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebook-síðu embættisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert